Allt það helsta um nýja kjarasamninga
Kynningarfundir vegna nýrra kjarasamninga Fagfélaganna (RSÍ, MATVÍS og VM) við Samtök atvinnulífsins verða haldnir á næstu dögum.
Fyrsti fundurinn verður haldinn á Grand hótel á morgun, þriðjudaginn 12. mars klukkan 12:00. Þessi fundur verður einnig aðgengilegur í gegn um fjarfund en félagsfólk getur nálgast hlekk á „mínum síðum“.
Glærukynningu vegna samninganna má sjá hér.
Introduction of the new Collective Wage Agreements
Stöðugleika- og velferðarsamningurinn
Dagskrá kynningarfunda:
- Reykjavík – Grand hótel
Þriðjudagur 12. mars kl. 12:00 (Fjarfundur einnig í boði) - Akureyri – Hof
Miðvikudagur 13. mars kl. 12:00 - Sauðárkrókur – Ljósheimar
Fimmtudagur 14. mars. kl. 12:00 - Reykjanesbær – Park inn by Radisson
Föstudagur 15. mars kl. 12:00 - Selfoss – Sviðið í nýja miðbænum
Föstudagur 15. mars kl. 12:00 - Reyðarfjörður – Tærgesen
Mánudagur – 18. mars kl. 12:00 - Neskaupstaður – Hildibrand hótel
Mánudagur – 18. mars kl. 12:00 - Egilsstaðir – Gistihúsið
Mánudagur – 18. mars kl. 17:00
Athugið að boðið verður upp á málsverð á öllum fundunum.
Atkvæðagreiðsla hefst
Atkvæðagreiðsla um samningana hefst á morgun, þriðjudaginn 12. mars klukkan 12:30. Hún stendur yfir í rúma viku, eða til þriðjudagsins 19. mars klukkan 14:00. Kosið er á „mínum síðum“.
Launareiknivél
Hér má reikna út hvernig laun hækka miðað við nýjan samning.