2023
Nýtt tölublað komið út
Fréttir

Nýtt tölublað komið út

Nýtt tölublað Tímarits VM er komið út. Í blaðinu, sem er 84 síður, kennir ýmissa grasa. Formaður félagsins og varaformaður tala um kjaramálin í blaðinu en Guðmundur Helgi Þórarinsson fer yfir mikilvægi þess að sigrast á verðbólgunni.

Fjallað er um yfirstaðna kjararáðstefnu félagsins auk þess sem í blaðinu er viðtal við Gunnar Kristján Oddsteinsson vélstjóra sem var Ófeigi ll þegar báturinn sökk. „Það eina sem ég gat gert var að keyra þetta áfram eins og hægt var,” segir hann meðal annars í viðtalinu.

Fjallað er um IÐUNA fræðslusetur í blaðinu og rætt við Ársæl Guðmundsson, skólameistara Borgarholtsskóla, svo fátt eitt sé nefnt.

Blaðið fer nú í dreifingu en það má lesa í rafrænni útgáfu hér.