2023
Ókeypis heyrnarmæling fyrir félagsfólk VM
Fréttir

Ókeypis heyrnarmæling fyrir félagsfólk VM

Lyfja hefur ákveðið að bjóða félagsfólki í VM í heyrnarmælingu þeim að kostnaðarlausu í Lyfju Heyrn, Lágmúla 5. Í erindi frá fyrirtækinu kemur fram að einnig sé í boði 10% afsláttur af allri heyrnarvernd í Lyfju Heyrn allan desember.

„Í ykkar starfsgrein getur verið töluvert mikið um hávaða sem því miður getur skert heyrnina. Einföld heyrnarmæling tekur stöðuna á heyrninni og niðurstaðan segir til um það hvort að möguleg heyrnarskerðing sé til staðar. Þú pantar tíma í einfalda heyrnarmælingu þér að kostnaðarlausu í gegnum Noona.” Fram kemur að einnig sé hægt að kíkja við í Lágmúla 5 og fá ráðgjöf um heyrnarvernd.