2023
Desemberuppbót 2023
Fréttir

Desemberuppbót 2023

VM minnir á að desemberuppbót 2023 á almennum markaði er 103.000 krónur. Hana skal greiða út eigi síðar en 15. desember, miðað við starfshlutfall og starfstíma. Athugið að upphæð desemberuppbótar er breytileg á milli kjarasamninga.

Allir starfsmenn sem hafa unnið samfellt hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu vikuna í desember. Hér má sjá nánari upplýsingar um desemberuppbót.

Starfsmenn sem eru í starfi fyrstu vikuna í desember ár hvert eiga ávallt rétt á uppbót, hlutfallslegri miðað við starfstíma og/eða starfshlutfall á almanaksárinu, 1. janúar – 31. desember.

Réttur til fullrar desemberuppbótar miðast við að starfsmaður hafi unnið 45 vikur eða meira á almanaksárinu, 1. janúar – 31. desember, fyrir utan orlof.