2023
Fjölmargir íslenskir fulltrúar í Barselóna
Fréttir

Fjölmargir íslenskir fulltrúar í Barselóna

Fulltrúar fjörutíu og fimm íslenskra fyrirtækja kynna nú vörur sínar og þjónustu á Alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni í Barselóna á Spáni. Sýningin hófst í gær, mánudag, og er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Sýningin er nú haldin í 29. skipti en hún var lengst af í Brussel í Belgíu. Hún fer nú fram í annað sinn í Barselóna.

Fram kemur á heimasíðu sýningarinnar að ríflega 2.000 fyrirtæki taki þátt í sýningunni frá 87 löndum en auk þess eru þar básar 68 þjóða. Sýningarrýmið telur tæplega 50 þúsund fermetra.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þau íslensku fyrirtæki sem eru í Barselóna.

Eins og áður er sýningin tvískipt. Annars vegar er um að ræða framleiðendur sjávarafurða en hins vegar þjónustufyrirtæki í sjávarútvegi.