
Kjarasamningur við HS orku undirritaður
Kjarasamningur RSÍ og VM við HS orku var undirritaður í dag þriðjudaginn 21 mars.
Kynning á samningnum mun fara fram í HS orku fimmtudaginn 23. mars klukkan 09:00.
Kosning um kjarasamninginn mun hefjast miðvikudaginn 22. mars klukkan 12:00 og stendur yfir til 28. mars klukkan 12:00.
Kosið er rafrænt í gegnum „mínar síður“ á heimasíðum félaganna.