2023
Opið fyrir umsóknir um sumarúthlutun
Fréttir

Opið fyrir umsóknir um sumarúthlutun

Úthlutað verður þann 7. mars

Opið er fyrir umsóknir um sumarúthlutun í orlofshús VM frá 21. febrúar til og með 6. mars. Sumartímabilið árið 2023 er frá 15. júní til 18. ágúst en helgarleiga er leyfð eftir það.

Úthlutað verður þann 7. mars en síðasti greiðsludagur er 14. mars. Daginn eftir, þann 15. mars klukkan 12:00, verður opnað á bókanir fyrir þá sem fengu synjun.

Vefurinn opnar aftur fyrir almennar bókanir 20. mars kl 12:00.

Athugið að eingöngu er hægt að sækja um orlofshús/-íbúðir í gegnum orlofsvefinn. Til að skrá sig inn á félagavef þarf að nota rafræn skilríki eða íslykil. Inneign orlofspunkta ræður því hver fær bústað en öllum umsóknum verður svarað.

Við minnum á að ferðastyrkir standa ekki lengur til boða en þess í stað er hægt að kaupa ferðaávísun. Hún veitir aðgang að tugum hótela og gistiheimila á sérkjörum um allt land en einnig að gönguferðum og annarri útivist. Ferðaávísun fæst aðeins keypt á orlofsvef.

Sækja um orlofshús