2022
Staðan í kjaraviðræðum 28. okt
Pistlar

Staðan í kjaraviðræðum 28. okt

Staða kjaraviðræðna er sú í dag að búið að er halda nokkra samningafundi með Samtökum atvinnulífsins þar sem kröfugerð og samningsmarkmið hafa verið lögð fram. Síðast var fundað í þessari viku og hefur næsti fundur verið boðaður í byrjun næstu viku. VM tekur þátt í samfloti iðn- og tæknifólks líkt áður. Auk þess eru mikil samskipti við aðra hópa á almennum vinnumarkaði eins og samflot SGS og LÍV.

Kjarasamningarnir renna út í byrjun næstu viku og því augljóst að mikil áhersla er lögð á það af hálfu félaganna að ná endurnýjun kjarasamninganna sem allra fyrst. Iðn- og tæknifólk hefur að sjálfsögðu sett fram kröfu um að kjarasamningar gildi frá lokum þess síðasta.

Það er búið að halda þrjá formlega fundi og sá fjórði verður á mánudaginn kemur. Hingað til hafa menn verið að skiptast á skoðunum það svigrúm sem er til staðar og lengd samnings.

Vonandi getum við farið að snúa okkur að fullu að kröfugerðinni sjálfri.

Guðmundur Helgi formaður.