2022
Viðhorfskönnun VM
Fréttir

Viðhorfskönnun VM

Í apríl hófst vinna við gerð kröfugerðar hjá VM. Send var út viðhorfskönnun þar sem spurt var út í álit félagsmanna VM á því hvernig ætti að semja í næstu kjarasamningalotu en kjarasamningar losna 1. nóv 2022.

Kjaradeild Fagfélaganna hefur nú unnið skýrslu fyrir VM og er hún aðgengileg hér. Við hvetjum félagsmenn okkar til að kynna sér skýrsluna.

Einnig hvetjum við áhugasamt félagsfólk til þess að hafa samband við félagið ef það hefur áhuga á að koma í samninganefnd félagsins vegna kjarasamning VM við SA (almennur kjarasamningur VM).

Þau sem hafa áhuga á að sitja í samninganefnd VM hafa samband við Benóný Harðarson forstöðumann kjaradeildar Fagfélaganna á netfangið benony@fagfelogin.is þar sem tekið er fram nafn, kennitala og vinnustaður.