Auglýsingar og styrkir

VM hefur markað sér ákveðna stefnu varðandi auglýsingar og styrki.
Ef ástæða þykir til auglýsir VM í fjölmiðlum, skólablöðum, fagtímaritum, félagsritum og víðar.

VM auglýsir ekki í:

  • blöðum sem stjórnmálaflokkar eða landshlutafélög og deildir tengdar þeim gefa út.
  • blöðum og öðrum miðlum fyrirtækja, félaga og stofnanna sem uppvís hafa orðið af að birta auglýsingar sem innihalda boðskap, í orðum eða myndum, sem brýtur gegn almennri velsæmiskennd og stangast á við viðtekin samfélagsleg gildi.

Fyrir allar styrktar- og auglýsingabeiðnir þarf að útfylla þar til gert umsóknareyðublað.

Logo

VM auglýsir að lágmarki með lógói félagsins.

  • Sækja logo VM í pdf  – hér
  • Logo VM – pdf með litum – hér