Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér félagavefinn.
Hér er hægt að skoða lausar vikur á félagavef
VM á úrval íbúða og orlofshúsa um allt land.
Á Suðurlandi:
Meginorlofshúsabyggð VM er á Laugarvatni, í landi Snorrastaða, þar á félagið 14 hús.
Við Kirkjubæjarklaustur á félagið tvö heilsárshús.
Á Syðri-Reykjum, 14 km austan við Laugarvatn, á félagið tvö stór hús.
Í Ölfusborgum við Hveragerði, á félagið þrjú hús.
Í Reykjavík á félagið 5 íbúðir, 4 í Mánatúni og eina á Skúlagötu.
Í Hraunborgum á félagið eitt hús.
Á Vestfjörðum: Í Vatnsfirði, rétt við Flókalund, á félagið hlut í sumarhúsi. Þar er eingöngu sumarleiga.
Á Vesturlandi:Í Svignaskarði í Borgarfirði, á félagið tvö hús.
Á Norðurlandi:
Á Akureyri á félagið 4 íbúðir við Furulund.
Á Illugastöðum í Fnjóskadal, um 40 km austan við Akureyri.
Á Austurlandi:
Á Úlfsstöðum á Fljótsdalshéraði, miðja vegu milli Egilsstaða og Hallormsstaðar.
Á Einarsstöðum á Fljótsdalshéraði, miðja vegu milli Egilsstaða og Hallormsstaðar.
Í Klifabotni í Lóni í Lónsöræfum, um 30 km austan við Höfn í Hornafirði.
Af gefnu tilefni:
Gæludýr eru bönnuð í öllum orlofshúsum VM nema húsi nr. G 5 á Kirkjubæjarklaustri og í Hraunborgum!
Biðja þarf um það hús sérstaklega við bókun eða þegar pantað er á netinu.
Kæru félagsmenn athugið að ekki er heimilt að vera með tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, húsbíla eða annars konar gistaðstöðu við sumarhús VM.
Kæru félagsmenn athugið að virða fjölda gistirýma í sumarhúsum.