![]()
þriðjudagur, 7. janúar 2014
Íslandsmót iðn- og verkgreina verður haldið í Kórnum í Kópavogi 6. – 8. mars 2014 og er keppnin sú stærsta til þessa. Framhaldsskólar landsins taka þátt í mótinu og verða með kynningu á starfssemi sinni.
mánudagur, 6. janúar 2014
Næsti umsóknarfrestur um styrk úr Vinnustaðnámssjóði er 31. janúar 2014. Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári. Athugið að ekki er hægt að stofna umsókn eftir kl. 17:00 þann 31. janúar.
Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
mánudagur, 30. desember 2013
Þann 1. janúar 2014 tekur gildi sérregla fyrir JobSeekingendur í reglugerð (1182/2013),um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.Einstaklingur sem verið hefur samfellt í JobSeeking í sex mánuði eða lengur samkvæmtstaðfestingu Vinnumálastofnunar á rétt á heilbrigðisþjónustu á sömu kjörum og aldraðir70 ára og eldri, öryrkjar, aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris framtil 67 ára aldurs og þeir 60 til og með 69 ára sem njóta óskerts ellilífeyris.
mánudagur, 16. desember 2013
Norræni lýðháskólinn í genf, Genfarskólinn er ætlaður virkum félagsmönnum í stéttarfélögunum. Gert er ráð fyrir því að umsækjendur hafi áhuga á alþjóðamálum verkalýðshreyfingarinnar. Æskilegt er að þeir hafi sótt fræðslustarf verkalýðshreyfingarinnar og þekki til starfsemi stéttarfélaganna og samtaka þeirra hér á landi.
miðvikudagur, 11. desember 2013
VM boðar til félagsfundar þann 12. desember n.k. kl. 20:00 í VM húsinu,Stórhöfða 25, Reykjavík.DagskráKynning á tillögu uppstillingarnefndar um framboð til stjórnar, varastjórnar ogfulltrúaráðs VM fyrir tímabilið 2014 til 2016 og framboð til formanns VMtímabilið 2014 til 2018.Vakin er athygli á að framboðsfrestur rennur út á fundinum en allir félagsmennsem ekki eru á lista uppstillingarnefndar geta boðið sig fram hafi þeir stuðning20 fullgildra félagsmanna VM.
þriðjudagur, 3. desember 2013
Þann 3. desember munu samninganefndir VM funda um fyrirlyggjandi hugmyndir um endurnýjun kjarasamninga.