2022
Golfmót VM 2022 úrslit
Fréttir

Golfmót VM 2022 úrslit

Hið árlega golfmót VM var haldið föstudaginn 5.ágúst á Hlíðavelli, Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Fín þátttaka var á mótinu, keppt var í höggleik og punktakeppni.
Sigurvegari VM mótsins var Sigurbjörn Theodórsson og hlaut hann að launum hinn eftirsótta farandbikar VM.
Viljum við hjá VM óska honum til hamingju með sigurinn og þakka þeim fjölmörgu sem tóku þátt í mótinu.

Úrslit punktakeppninnar voru eftirfarandi

1.sæti Sigurbjörn Theodórsson á 41 punktum
2.sæti Jón Valdimarsson á 36 punktum
3.sæti  Sigurður P. Sigurðsson á 32 punktum

Úrslit Höggleiksins voru eftirfarandi

1.sæti Ævar Rafn Þrastarson á 88 höggum
2.sæti Gunnlaugur Júlíusson á 89 höggum
3.sæti Guðjón Gunnsteinsson á 92 höggum

Veitt voru nándarverðlaun á eftirfarandi brautum.

Á 7. braut var Kristinn Brynjólfsson næstur holu og hlaut að launum helgarleigu í bústað VM (utan úthlutunnartímabila)
Á 18. braut var Pétur Hlöðversson næstur holu og hlaut að launum helgarleigu í bústað VM (utan úthlutunnartímabila)

Veitt voru verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á braut næst holu á eftirfarandi brautum.
Á 11. braut átti Gunnar Bermann Gunnarsson lengsta upphafshöggið og hlaut að launum ferðaávísun að andvirði kr. 20.000.

Einnig viljum við koma á framfæri þakklæti til eftirfarandi fyrirtækja fyrir að veita verðlaun til að gera mótið sem veglegast.