Pistlar
laugardagur, 11. júní 2022
Síðastliðin tvö ár hefur skipulagðri dagskrá Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins verið aflýst vegna samkomutakmarkanna út af covid 19 faraldrinum, eins og víðast annars staðar. Því er það mjög gleðilegt að við getum aftur farið að halda upp á daginn með skipulagðri dagskrá.
sunnudagur, 5. júní 2022
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherrav ar að skipa annarsvegar stóra samráðsnefnd með aðkomu allra þingflokka og helstu hagsmunaaðila en líka sérfræðingahópa sem eru ekki með beinar flokkspólitískar tengingar.
föstudagur, 18. mars 2022
Fjölmargir kjarasamningar eru að losna á þessu og næsta ári. Grátkór atvinnurekanda er því byrjaður á sínu reglubundna væli að hér á landi er ekki hægt að hækka laun og ekkert er til skiptanna, ábyrgð launafólks á hagkerfinu er algjör.
föstudagur, 11. mars 2022
Í morgun þegar ég borðaði morgunmatinn yfir blöðunum þá varð mér gjörsamlega misboðið, ég varð svo reiður að ég hef ekki treyst mér til að skrifa þennan pistil fyrr en núna.
Kjarasamningar snúast um það að atvinnulífið og launafólk skipti með sér þeim ábata sem myndast og það er á hreinu að ábati sjómanna af heildarkökunni er alltaf að minnka.
föstudagur, 4. mars 2022
Stundum er gott að líta um öxl og meta það sem gert hefur verið. Eitt af því sem samið var um í síðustu samningum við SA var hagvaxtarauki. Það er launaauki á grundvelli þróunar vergrar landsframleiðslu á hvern íbúa.
föstudagur, 25. febrúar 2022
Ný kjarakönnun VM kláraðist loksins í vikunni. Hægt er að skoða hana hér.
Það er mikilvægt fyrir okkur að fá þessar kjarakannanir bæði til í að sjá hvar okkar félagsmenn standa almennt og svo félagsmenn okkar geti séð hvar þau standa m.
föstudagur, 18. febrúar 2022
Mig langar að skrifa um framtíðarsýn mína í kjaramálum. Í stóru félagi eins og VM eru kjaramál flókin enda kjarasamningar margir og ætla ég að fara yfir helstu atriðin í því.
Þetta er mín sýn á hlutina.
föstudagur, 11. febrúar 2022
Það var ánægjulegt að hitta trúnaðarmannaráð VM á fimmtudaginn var á staðfundi. Það minnir okkur á að takmarkanir eru að minnka að geta loksins kallað saman almennilegan fund. Fundirnir verða alltaf persónulegri og skilvirkari þegar fundirnir eru staðfundir.
föstudagur, 4. febrúar 2022
Frá því að ég tók við sem formaður VM 2018 hef ég talað fyrir samvinnu stéttarfélaga. Samvinnu á þá leið að félög eiga að vinna saman að sameigenlegum kröfum en halda í sjálfstæði sitt á þeim stöðum þar sem kröfur eru ekki sameiginlegar.
föstudagur, 28. janúar 2022
Góðir félagar.
Ég er einn af þeim sem er að stíga upp úr Covid-smiti og vil minna alla á að gæta að sóttvörnum því veikindin leggjast misþungt á fólk. Þrátt fyrir það hef ég getað sinnt mörgu og mætti á alla fjarfundi.