Pistlar 05 2020
föstudagur, 29. maí 2020
Þegar skrifað var undir kjarasamning í maí 2019 var eitt af stóru málum samningins stytting vinnuvikunnar. Við erum stolt af því að samkvæmt þeim vinnustaðasamningum sem við erum búin að koma að þá verður búið að stytta vinnutímann hjá um 35% félagsmanna VM sem starfa í landi.
föstudagur, 22. maí 2020
Í vikunni opnuðum við aftur skrifstofu félagsins í kjölfar þess að smitum vegna covid-19 hefur fækkað stórlega í samfélaginu. Við þurfum þó að fara varlega áfram og biðjum því alla okkar gesti að virða 2ja metra regluna í móttökunni og fara eftir reglum sóttvarnalæknis um handþvott og handspritt.
föstudagur, 15. maí 2020
Með hækkandi sól og rýmkun á samkomubanni verð ég var við aukna bjartsýni í samfélaginu sem er auðvitað gott. Við verðum þó áfram að vera skynsöm og hlusta á yfirvöld. Aðeins fjögur virk smit hafa greinst í maí, ekki er hægt að sjá annað en að við séum á réttri leið.
föstudagur, 8. maí 2020
Það eru skrýtnir tímar í samfélaginu en þrátt fyrir það þurftum við að finna leið til að halda aðalfund VM. Var ákveðið að halda aðalfund fimmtudaginn 30. apríl 2019 á rafrænan máta. Samkvæmt lögum VM á að halda aðalfund VM í síðasta lagi 30. apríl ár hvert og einnig á að kynna úrslit stjórnakjörs á aðalfundi enda kjörtímabil stjórnar á enda runnið.
föstudagur, 1. maí 2020
Byggjum réttlát þjóðfélag.
Við þær fordæmalausu aðstæður sem nú eru í þjóðfélaginu, í höftum samkomubanns, getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí í kröfugöngu. Er þetta í fyrsta skipti síðan 1923 sem launafólk á Íslandi getur ekki farið í kröfugöngu til að leggja áherslu á kröfur sínar.