2023
Sveinspróf í vélvirkjun og rennismíði
Fréttir

Sveinspróf í vélvirkjun og rennismíði

Sveinspróf í vélvirkjun annars vegar og rennismíði hins vegar verða haldin í febrúar 2024, að því er fram kemur á vef IÐUNNAR fræðsluseturs. Þetta er háð því að þátttaka verði næg. 

Umsóknarfrestur er til 15. janúar.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit eða staðfestingu frá skóla úr rafrænni ferilbók. Einnig burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2023. Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublað má nálgast hér.