Verðmótandi fyrirtæki krafin svara: Orð skulu standa!
VR, Landssamband íslenskra verzlunarmanna (LÍV) og Fagfélögin hafa sent stórum og verðmótandi fyrirtækjum bréf þar sem kallað er eftir skýrum svörum um hvað þau hyggist leggja af mörkum til að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Tilefnið er endurskoðun kjarasamninga en tilkynna þarf um mögulega uppsögn þeirra í síðasta lagi 8. október næstkomandi.
Við gerð langtímakjarasamninga vorið 2024 var lögð áhersla á að launafólk, atvinnurekendur og opinberir aðilar legðu sitt af mörkum til að skapa efnahagslegan stöðugleika. Launafólk tók verulega áhættu með því að samþykkja hóflegar launahækkanir til fjögurra ára, sem voru lægri en verðbólga þess tíma. Á móti var gert ráð fyrir að fyrirtæki sýndu aðhald í verðlagningu svo skapa mætti skilyrði fyrir lægri verðbólgu, lækkun vaxta og auknum kaupmætti.
Sú þróun hefur ekki gengið eftir og á það er bent í bréfinu. Verðbólga hefur reynst þrálát, vextir eru áfram háir og áframhaldandi verðhækkanir hafa étið upp stóran hluta umsaminna launahækkana. Jafnframt hafa fjölmörg fyrirtæki hækkað verð umfram verðbólgu og aukið hagnað sinn á verðbólgutímum.
Í bréfinu er bent á að verðákvarðanir stórra og verðmótandi fyrirtækja hafi áhrif langt út fyrir rekstur þeirra sjálfra. Þær hafi áhrif á útgjöld heimilanna, verðbólguvæntingar, ákvarðanir annarra fyrirtækja og möguleika Seðlabankans til að lækka vexti.
VR, LÍV og Fagfélögin óska því eftir skriflegum svörum frá fyrirtækjunum um hvaða aðgerða þau séu tilbúin að grípa til. Meðal annars er spurt hvort þau séu reiðubúin að halda aftur af verðhækkunum út gildistíma kjarasamninga, endurskoða verðhækkanir sem þegar hafa tekið gildi og tryggja að hagræðing, aukin framleiðni og lækkun aðfangakostnaðar skili sér til neytenda í lægra verði.
„Ekki er hægt að ætlast til þess að launafólk eitt beri kostnaðinn af baráttunni við verðbólguna á meðan verðhækkanir fyrirtækja ganga áfram og afkoma eða framlegð er varin eða aukin. Launafólk hefur þegar lagt mikið undir. Nú reynir á að fyrirtæki sýni með skýrum og sýnilegum aðgerðum að þau ætli sér raunverulega að leggjast á árarnar,“ segir meðal annars í bréfinu.
Orð skulu standa.
Listi yfir fyrirtækin sem fengu bréf:
- Arion banki
- Bera
- Drangar
- Eimskipafélag Íslands
- Festi
- Garri
- Hagar
- HS Orka
- Innnes
- Íslandsbanki
- ÍSAM / Ó. Johnson & Kaaber
- Kaupfélag Skagfirðinga
- Kvika banki
- Landsbankinn
- Landsvirkjun
- Natan
- Orkuveitan
- RARIK
- Samskip
- Sláturfélag Suðurlands
- Veitur