Orlofshús VM í Flókalundi
Við vekjum athygli á því að VM hefur lengt í leigutímabili á svæðinu og verður því hús okkar í Flókalundi opið út nóvember.
Félagsmenn geta því leigt orlofshús félagsins mun lengur þetta árið en verið hefur. Eftir sumarúthlutun verða einungis helgarleigur í boði, það er frá fimmtudegi til mánudags.