Tímarit VM er komið út
Nýtt tölublað Tímarits VM er komið úr prentun og er á leið í dreifingu til eldri félagsmanna auk þeirra sem óskað hafa eftir því að fá blaðið sent heim. Blaðið er aðgengilegt öllum hér á vefnum auk þess sem hægt er að sækja eintak á skrifstofu félagsins.
Í blaðinu er viðtal við nýjan formann félagsins, Gunnar Sigurðsson, sem rifjar upp sjómannsferil sinn og segir frá alvarlegu vinnuslysi sem batt enda á sjómannsferilinn. Hann ræðir líka verkefni félagsins og framtíð félagsins.
Guðmundur Helgi Þórarinsson er einnig til viðtals í blaðinu en hann er nú stiginn frá borði eftir að hafa setið í stjórn VM frá upphafi og verið formaður sl. 8 ár.
Blaðið hefur að geyma umfjöllun um niðurstöður rannsóknar á kynferðislegri áreitni gagnvart konum í starfsgreinum VM. Fjallað er um Skrúfudaginn í máli og myndum auk ýmissa áhugaverðra viðtala og greina.