Stuðningsyfirlýsing við Sjómannafélag Íslands
Yfirlýsing frá VM – félagi vélstjóra og málmtæknimanna
VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna lýsir yfir fullum stuðningi við aðgerðir háseta í Sjómannafélagi Íslands og þá kröfu þeirra að störf um borð í íslenskum kaupskipum verði áfram unnin af starfsfólki sem nýtur íslenskra kjara og réttinda.
Ljóst er að á undanförnum árum hafa sum stærstu fyrirtæki landsins leitað leiða til að færa störf úr landi í þeim tilgangi að lækka launakostnað og komast hjá þeirri samfélagslegu ábyrgð sem felst í þátttöku á íslenskum vinnumarkaði. Slíkar aðgerðir grafa undan kjörum íslensks launafólks og veikja jafnframt þá sameiginlegu sjóði og réttindakerfi sem byggð hafa verið upp í gegnum áratuga starf verkalýðshreyfingarinnar.
Það er grundvallarkrafa stéttarfélaga á Íslandi að fyrirtæki sem starfa hér á landi taki virkan þátt í íslensku samfélagi, virði íslenska kjarasamninga og tryggi að störf séu ekki flutt úr landi eingöngu í þeim tilgangi að auka arðsemi á kostnað starfsfólks og samfélagsins í heild.
VM hvetur Eimskip eindregið til að hverfa frá þeirri vegferð að færa störf háseta frá íslenskum sjómönnum og hefja þegar í stað málefnalegar viðræður við Sjómannafélag Íslands með það að markmiði að ná samkomulagi um framtíð starfa háseta um borð í skipum félagsins.
Samstaða launafólks er forsenda þess að verja kjör, réttindi og störf á íslenskum vinnumarkaði.