2026
Ríflega helmingur kvenna í VM og RSÍ hefur sætt kynferðislegri áreitni í starfi
Fréttir

Ríflega helmingur kvenna í VM og RSÍ hefur sætt kynferðislegri áreitni í starfi

Ríflega helmingur kvenna í Rafiðnaðarsambandi Íslands og VM – Félagi vélstjóra og málmtæknimanna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sínu samkvæmt nýrri rannsókn Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Þá hefur rúmlega fjórðungur orðið fyrir einelti á vinnustað.

Þetta eru meðal helstu niðurstaðna rannsóknarinnar Konur í karllægum greinum sem byggir á svörum 222 kvenna innan RSÍ og VM. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á stöðu og reynslu kvenna í karllægum greinum á íslenskum vinnumarkaði, en lítið hefur áður verið rannsakað um þann hóp.

Spurningakönnunin var send til 949 kvenna og var svarhlutfallið 23,4 prósent. Könnunin var opin frá 11. desember 2025 til 7. janúar 2026. Spurt var meðal annars um starfsumhverfi, vinnustaðamenningu, starfsframa, samspil vinnu og fjölskyldulífs og reynslu af einelti og áreitni.

Í niðurstöðunum kemur fram að tveir þriðju svarenda hafi orðið fyrir meiðandi atvikum eða athugasemdum í vinnu og 44 prósent hafi orðið vitni að einelti eða kynbundinni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað. Þá segjast um fjórar af hverjum tíu hafa upplifað að faglegt mat þeirra hafi verið hundsað og þriðjungur hefur verið særður eða niðurlægður fyrir framan aðra.

Í rýnihóparannsókn sem lagði grunn að könnuninni lýstu konur krefjandi starfsaðstæðum og karllægri vinnustaðamenningu þar sem þær þyrftu oft að sanna hæfni sína. Einnig kom fram að skipulag vinnutíma væri í mörgum tilvikum miðað við aðstæður karla sem gæti gert konum erfiðara fyrir, meðal annars í tengslum við fjölskyldulíf og barneignir.

Aðrar helstu niðurstöður

  • 66% kvenna höfðu orðið fyrir einhvers konar neikvæðum atvikum eða athugasemdum í vinnu.
  • 34% höfðu ekki orðið fyrir slíkum atvikum.
  • 44% höfðu orðið vitni að einelti eða kynbundinni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað.
  • 27% höfðu örugglega eða líklega orðið fyrir einelti í vinnunni.
  • 77% þeirra sem urðu fyrir einelti sögðu gerandann vera vinnufélaga og 46% stjórnanda.
  • 39% höfðu upplifað að faglegt mat þeirra væri hundsað.
  • 32% höfðu verið særð eða niðurlægð fyrir framan aðra.
  • 27% höfðu fengið ósanngjarna gagnrýni á störf sín.
  • 27% höfðu upplifað óraunhæfar kröfur um frammistöðu eða vinnutíma.
  • 12% höfðu orðið fyrir ógnandi hegðun, hótunum eða ofbeldi á vinnustað.

Sjá niðurstöðurnar í heild