2026
Krefst skýringa á loðnuverði á Íslandi
Fréttir

Krefst skýringa á loðnuverði á Íslandi

Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, fjallar um verðmyndun loðnu og kjör sjómanna í athyglisverðri grein sem sambandið hefur birt vegna loðnuvertíðarinnar 2026. Þar er bent á mikinn verðmun á loðnu upp úr sjó hér á landi og í Færeyjum. Mikilvægt sé að leita skýringa á þeim mun.

Í greininni er vísað til upplýsinga sem fram hafi komið á Alþingi um að verð á loðnu upp úr sjó í Færeyjum hafi verið allt að þrefalt hærra en hér á landi á liðinni vertíð. Valmundur tekur þó fram að lokauppgjör loðnuverðs til sjómanna liggi ekki enn fyrir og að minna magni hafi verið landað í Færeyjum sem geti haft áhrif á samanburðinn.

„Laun sjómanna ráðast að stærstum hluta af aflaverðmæti. Ef verðið við löndun er lágt, hefur það bein áhrif á kjör þeirra. Það skiptir því sköpum að verðmyndunin sé gagnsæ og að hún standist samanburð við önnur lönd þar sem sambærileg vara er seld,“ segir Valmundur í greininni.

Þar kemur fram að miðað við um 151 þúsund tonna loðnuafla og meðalverð upp á um 80 krónur fyrir kílóið hafi aflaverðmætið hér á landi verið um 12 milljarðar króna. Ef hins vegar væri miðað við það verð sem rætt hefur verið um í Færeyjum hefði aflaverðmætið numið um 35 milljörðum króna. Valmundur segir að slíkur munur veki spurningar um hvort íslenska verðið endurspegli raunverulegt markaðsvirði loðnunnar.

„Það er ekki nóg að segja að markaðurinn ráði. Markaður sem enginn sér inn í er ekki raunverulegur markaður,“ segir hann.

Í greininni kemur einnig fram að Sjómannasamband Íslands muni hvetja sjómenn til að segja upp gildandi verðsamningum á uppsjávarfiski ef uppgjörsverð verði ekki talið ásættanlegt. Að mati Valmundar snýst umræðan ekki eingöngu um loðnu heldur traust á verðmyndunarkerfi sjávarútvegsins í heild.

„Krafa verkalýðshreyfingarinnar hlýtur að vera skýr: fullt gagnsæi í verðmyndun sjávarafurða og trygging þess að þeir sem sækja auðlindina fái réttmætan hlut af verðmætunum,“ segir Valmundur í greininni.