Mætum öll í kröfugöngu 1. maí!
Fagfélögin skora á félagsfólk um allt land að taka þátt í kröfugöngu á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Kröfugöngur, útifundir og aðrir dagskrárliðir í tilefni dagsins fara fram víða um landið.
Slagorð dagsins að þessu sinni er „Styrkur okkar er velferð allra“.
Dagskráin í Reykjavík
- 13:00 Safnast saman á Skólavörðuholti.
- 13:30 Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.
- 14:00 Útifundur hefst á Ingólfstorgi. Fundarstjóri er Felix Bergsson, fjölmiðlamaður og leikari. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, ávarpar fundinn og Inspector Spacetime tekur lagið. Í lok fundarins verður samsöngur.
Hér má sjá dagskrána um landið allt
Fagfélögin bjóða félagsfólki í kaffi að dagskrá lokinni í miðborginni. Kaffiboðið verður á Stórhöfða 29-31 en gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin. Húsið verður opnað klukkan 14:00.