Launahækkanir taka gildi
Athygli félagsfólks er vakin á því að þann 1. apríl hækkuðu mánaðarlaun á opinberum markaði um 3,5% eða 23.750 krónur að lágmarki. Um er að ræða hækkun starfsfólks ríkis, Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga.
Taxtar á almennum markaði hækkuðu jafnframt um 0,06% þann 1. apríl 2026.
Starfsfólk á eftirágreiddum launum ætti að sjá þessar hækkanir á launaseðlinum sem kemur um komandi mánaðamót.
Athygli er vakin á því að launatöflur VM hafa verið uppfærðar.