Nýr formaður tekinn við VM
Gunnar Sigurðsson tók við formennsku í VM á aðalfundi félagsins 22. apríl síðastliðinn. Um leið lét Guðmundur Helgi Þórarinsson af störfum en hann hefur setið í stjórn félagsins frá upphafi, þar af síðastliðin 8 ár sem formaður. Hann hlaut standandi lófaklapp að lokinni sinni síðustu ræðu í hluverki formanns.
Gunnar hlaut rétt liðlega 54% greiddra atkvæða í formannskjöri í apríl. Fjórir voru í framboði.
Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf.
Heimir Vilhjálmur Pálmason vélstjóri og Þorsteinn Vilberg Reynisson vélvirki voru á fundinum heiðraðir fyrir störf sín í þágu félagins.
- Gunnar Sigurðsson í pontu.
- Hluti stjórnarmanna og varamanna í stjórn VM.
- Heimir Vilhjálmur Pálmason vélstjóri og Þorsteinn Vilberg Reynisson vélvirki voru heiðraðir fyrir störf sín í þágu félagins.
- Heimir VIlhjálmur Pálmason.
- Þorsteinn Vilberg Reynisson og Guðmundur Helgi Þórarinsson.
- Fráfarandi formaður í pontu.
- Gamall formaður og nýr.
- Benóný Harðarson, framkvæmdastjóri Fagfélaganna.
- Gunnar Sigurðsson, nýr formaður VM.



















