Gunnar Sigurðsson er næsti formaður VM
Formanns- og stjórnarkjöri VM árið 2026, lauk kl. 17:00 í dag.
Á kjörskrá var 3.981 félagi. Atkvæði greiddu 1.087, eða 27,3% þeirra sem voru á kjörskrá.
Fjórir félagar voru í framboði til formanns og 22 í framboði til stjórnar. Um formann er kosið sérstaklega og ræður fjöldi atkvæða kjöri. Atkvæði féllu þannig:
| Frambjóðandi | Atkvæði | Hlutfall |
|---|---|---|
| Gunnar Sigurðsson | 586 | 53,91% |
| Arnar Sigurðsson | 193 | 17,76% |
| Einar Óskar Friðfinnsson | 158 | 14,54% |
| Eiríkur Ingi Jóhannsson | 111 | 10,21% |
| Skiluðu auðu | 39 | 3,59% |
Gunnar er því næsti formaður VM, með meirihluta greiddra atkvæða að baki sér. Hann tekur við stjórnartaumum í félaginu á aðalfundi næstkomandi miðvikudag. Þá stígur Guðmundur Helgi Þórarinsson, fráfarandi formaður, frá borði.
Réttkjörin í aðalstjórn VM eru þau átta sem flest atkvæði fengu. Þeir átta næstu eru varamenn í stjórn.
| Nr | Nafn | Atk. | Hlutf. |
|---|---|---|---|
| 1 | Gyða María Norðfjörð Símonardóttir | 419 | 38,55% |
| 2 | Rafnar Snær Baldvinsson | 376 | 34,59% |
| 3 | Einar Sveinn Kristjánsson | 359 | 33,03% |
| 4 | Helgi Már Sigurgeirsson | 355 | 32,66% |
| 5 | Ingi Bogi Hrafnsson | 352 | 32,38% |
| 6 | Pétur Freyr Jónsson | 344 | 31,65% |
| 7 | Valbjörn Jón Höskuldsson | 310 | 28,52% |
| 8 | Sigurður Gunnar Benediktsson | 292 | 26,86% |
| 9 | Kristmundur Skarphéðinsson | 289 | 26,59% |
| 10 | Guðbrandur Viktor Frímannsson | 279 | 25,67% |
| 11 | Sigurður Jóhann Erlingsson | 275 | 25,30% |
| 12 | Sigmar Örn Sigþórsson | 253 | 23,28% |
| 13 | Aðalsteinn Ómarson | 242 | 22,26% |
| 14 | Sigurður Örn Guðmundsson | 231 | 21,25% |
| 15 | Hjalti Kristjánsson | 209 | 19,23% |
| 16 | Brynjólfur Árnason | 206 | 18,95% |
| 17 | Snævar Örn Jónsson | 200 | 18,40% |
| 18 | Páll Heiðar Aadnegard | 147 | 13,52% |
| 19 | Hilmar Bjartmarz | 123 | 11,32% |
| 20 | Björn Ingi Jónsson | 122 | 11,22% |
| 21 | Sigurður H. Einarsson | 73 | 6,72% |
| 22 | Einar Örn Einarsson | 53 | 4,88% |
| Skila auðu | 44 | 4,05% |