Stjórnar og formannskjör VM: Upplýsingar um frambjóðendur
Kosningar til stjórnar og formanns VM hefjast á hádegi þann 5. apríl næstkomandi. Hægt verður að kjósa í tvær vikur eða til klukkan 17 þann 20. apríl. Kosningin verður rafræn.
Alls gefa 22 félagsmenn kosta á sér til stjórnarsetu á komandi kjörtímabili en fjórir aðrir sækjast eftir formannsembættinu.
Kynningarsíða þar sem frambjóðendur kynna sig fyrir félagsmönnum hefur verið opnuð.