2026
Fjölmenni á Skrúfudeginum 2026
Fréttir

Fjölmenni á Skrúfudeginum 2026

„Að baki þessum degi liggja margir fundir, mörg símtöl og tölvupóstar,“ segir Hilmir Hallsson, formaður skrúfunefndarinnar sem stóð á bak við Skrúfudaginn 2026. Um er að ræða kynningardag nemenda í Véltækni- og Skipstjórnarskóla Tækniskólans. Það eru útskriftarnemendur – nemendur á fjórða stigi – sem skipuleggja daginn. Mjög góð mæting var á Skrúfudaginn, sem fram fór 21. mars síðastliðinn. Á meðal gesta voru ráðherrarnir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Hilmir er úr Hafnarfirði en á ættir að rekja vestur í Ísafjarðardjúp. Hann segist alla tíð hafa haft áhuga á vélum og meðal annars fengið að prófa sig áfram á bílaverkstæði frænda síns.

En hvað varð til þess að hann fór í vélstjóranám? „Ég hef alltaf verið mikið í vélum og tækjum,“ svarar hann og bætir við að hann hafi langað að bæta við þekkingu sína þegar kemur að vélunum. Hann hafi fyrir vikið skráð sig í nám í vélvirkjun. „Svo þegar ég var kominn inn í skólann rakst ég á skólafélag Vélskólans og fór að taka þátt í félagslífinu. Í kjölfarið skipti ég yfir í vélstjórn.“

Lesa má Skrúfuna hér

Hilmir lýkur námi í vor og stefnir á að taka sveinsprófið næsta haust. Hann er ekki hættur að læra. „Svo ætla ég að bæta við mig menntun í rafvirkjum. Okkur býðst hér að taka átta eða níu áfanga til viðbótar og ljúka sveinsprófi í rafvirkjun líka. Næsta vetur fer ég í það, samhliða vinnu,“ segir hann.

Í ár voru 67 ár síðan Skrúfudagurinn var fyrst haldinn. Hilmir segir að um sé að ræða mjög stóran hátíðardag fyrir nemendur og skólann. Það er útskriftarhópurinn sem stendur fyrir deginum. „Við byrjuðum í haust að hóa útskriftarhópnum saman, undirbúa útgáfu blaðsins Skrúfunnar, heyra í fyrirtækjum og selja auglýsingar á peysur, sem við gefum hérna á Skrúfudeginum. Eftir áramótin hefur undirbúningurinn verið miklu stífari. Síðasta vikan fyrir daginn fór svo í að þrífa skólann og taka til, hátt og lágt,“ segir hann.

Hilmir er ánægður með hvernig til tókst. „Hér er ótrúlega margt fólk og það er mjög ánægjulegt. Að baki þessum degi er löng saga sem er ánægjulegt að geta viðhaldið,“ segir hann að lokum.