2026
Breytingar á reglum sjúkrasjóðs
Fréttir

Breytingar á reglum sjúkrasjóðs

Stjórn sjúkrasjóðs VM ákvað á síðasta fundi stjórnarinnar þann 24. febrúar að gera breytingu á styrkjum úr sjúkrasjóði VM.

Í fyrsta lagi hefur verið ákveðið að bótatímabil sjúkradagpeninga verði stytt frá úr 150 dögum í 120. Breytingin tekur gildi 1. mars 2026.

Í öðru lagi verða breytingar á 11. grein reglna sjóðsins. Hún hljóðar nú svo og gildir frá 1. apríl 2026:

Heimilt er að taka þátt í kostnaði félagsmanna vegna skilgreindra læknisaðgerða. Styrkur er metinn hverju sinni en að hámarki 40% af útlögðum kostnaði hafi kostnaður verið hærri en kr. 100.000, en þó að hámarki kr. 110.000, auk þátttöku í ferðakostnaði sé um það að ræða. Styrkur er veittur einu sinni á þriggja ára tímabili. Undir kostnaðarsamar læknisaðgerðir teljast t.d. laseraðgerð á augum eða dvöl á heilsustofnun í Hveragerði.

Í þriðja lagi hefur verið ákveðið að efla styrk félagsins þegar kemur að frjósemismeðferðum og ættleiðingum. Styrkur er veittur fjórum sinnum í stað þriggja skipta áður. Breytingin tekur gildi 1. apríl.

Stjórn sjúkrasjóðs VM