Hefur þú áhuga á að starfa í forystu VM?
Í ár lýkur kjörtímabili núverandi stjórnar og formanns VM. Stjórn og varastjórn félagsins er kosin til tveggja ára í senn en formaður til fjögurra ára. Uppstillingarnefnd VM kallar eftir framboðum til formanns- og stjórnar. Framboðum má skila á rafrænu eyðublaði sem er aðgengilegt her neðar á síðunni. Framboðsfresti lýkur á miðnætti þriðjudaginn 31.mars 2026.
Nefndin hvetur félagsfólk VM til að bjóða sig fram svo stjórn félagsins endurspegli breidd félagsins með tilliti til til starfsgreina og landssvæða. Stjórnarfundir eru haldnir einu sinni í mánuði, nema yfir sumartímann. Með tilkomu fjarfundaaðstöðu eiga félagsmenn út um land mun auðveldara að sækja fundi stjórnar. Formaður félagsins hefur verið í fullu starfi á skrifstofu félagsins.
Félagsmenn VM sem hafa greitt félagsgjald undanfarna sex mánuði áður en framboðsfrestur rennur út eru kjörgengir.
Framboð til stjórnar og formanns 2026
"*" indicates required fields