2026
Vinnustaðaeftirlit náði til nær 2.500 manns árið 2025
Fréttir

Vinnustaðaeftirlit náði til nær 2.500 manns árið 2025

Árið 2025 var unnið markvisst að eftirliti með kjörum og réttindum launafólks á vegum Vinnustaðaeftirlits Fagfélaganna og Eflingar. Alls voru farnar 317 heimsóknir á vinnustaði og rætt við 2.497 starfsmenn hjá 1.005 fyrirtækjum.

Sérstök áhersla var lögð á byggingariðnað, hótel og veitingastaði, ræstingaþjónustu, ferðaþjónustu, fiskvinnslu og garðyrkju. Eftirlitið fólst í vettvangsheimsóknum og samtölum við starfsfólk en auk þess leggur eftirlitið áherslu á að fræða starfsfólk um réttindi þess og skyldur.

Sumarið var annasamasti tími ársins þegar sérstakt ferðaátak stóð yfir í samstarfi við lögreglu, Vinnueftirlitið og Skattinn. Í júní voru farnar 34 heimsóknir og 28 í júlí og ágúst. Yfir þessa þrjá sumarmánuði var rætt við 850 starfsmenn. Áhersla var meðal annars lögð á bílstjóra hópferðabifreiða, leiðsögumenn, bílaleigur og hótel og tengda þjónustu.

Í ferðaátakinu komu fram dæmi um skort á ráðningarsamningum, ófullnægjandi launaseðla og vöntun vinnustaðaskírteina. Einnig reyndust tungumálaörðugleikar torvelda staðfestingu upplýsinga og starfsfólk var ekki alltaf meðvitað um kjarasamningsbundin réttindi sín. Átakinu fylgdi aukin fræðsla og leiðbeiningar af hálfu eftirlitsfulltrúa.

Haustið einkenndist af sérstakri áherslu á ræstingafyrirtæki og þar komu ítrekað upp áþekk brotamynstur, svo sem ófullnægjandi ráðningarsamningar, skortur á launaseðlum og svokallað jafnaðarkaup, sem er í trássi við kjarasamninga. Einnig komu upp tilvik þar sem orlofshlutfall var rangt og vinnustaðaskírteini voru ekki til staðar. Í desember lagði eftirlitið áherslu á fræðslu vegna desemberuppbótar, trúnaðarmannakerfið og rétt til félagsaðildar.

Greining ársins sýnir skýra árstíðabundna aukningu í ferðaþjónustu yfir sumarmánuðina og endurtekin brotamynstur í ræstinga- og þjónustugeira, þar sem óformleg ráðningarsambönd og skortur á skjölum eru algeng. Þá sýnir árið að samþætt eftirlit í samstarfi við aðrar stofnanir styrkir framkvæmd og eykur slagkraft eftirlitsins.

Fyrir árið 2026 er stefnt að áframhaldandi skipulögðu sumarátaki, að þessu sinni með sérstaka áherslu á byggingageirann, auk aukins reglubundins eftirlits í ræstinga- og garðyrkjugeira. Einnig verður lögð áhersla á markvissari eftirfylgni þar sem alvarleg frávik finnast og á fjöltyngda fræðslu til að styrkja þekkingu starfsfólks á réttindum sínum.

Ársskýrslan sýnir að vinnustaðaeftirlit er lykilþáttur í að verja réttindi launafólks og stuðla að heilbrigðum vinnumarkaði, en jafnframt að áfram sé þörf á markvissri og samhæfðri vinnu.