Leikhúsboð fyrir lífeyrisþega félagsins á Norðurlandi
Leikhúsboð – Tom, Dick og Harry
Laugardaginn 7. mars býður VM, lífeyrisþegum félagsins á Norðurlandi á leiksýninguna Tom, Dick og Harry í uppsetningu Freyvangsleikhússins. Boðið verður upp á kaffi í hléi. Um takmarkað sætaframboð er að ræða og því þurfa félagsmenn að skrá sig með því að að hringja í síma 455-1050 eða senda póst á fvsa@fvsa.is.
Hámark tveir miðar á hvern félagsmann.
Engin rútuferð verður í boði, gestir mæta beint í Freyvangsleikhús kl. 14:45, sýningin hefst kl. 15:00.
Um sýninguna
Leikverkið segir frá hjónunum Tom og Lindu sem eiga von á starfskonu frá ættleiðingarskrifstofunni. Bræður Tom, þeir Dick og Harry, eru ekki alveg skörpustu hnífarnir í skúffunni og eru með alls konar ráðabrugg og hugmyndir til þess að einfalda lífið – bæði fyrir sjálfa sig og fyrir Tom og Lindu. Við atburðarrásina fléttast að auki ýmsar persónur sem flækja málin.