2026
Vegna formanns- og stjórnarkjörs
Fréttir

Vegna formanns- og stjórnarkjörs

Frá uppstillingarnefnd:

Í ár lýkur kjörtímabili núverandi stjórnar og formanns VM. Stjórn og varastjórn félagsins er kosin til tveggja ára í senn en formaður til fjögurra ára.

Uppstillingarnefnd VM hefur hafið störf vegna formanns- og stjórnarkjörs og hefur ákveðið að framboðum til formanns eða til stjórnar verði skilað inn á rafrænu eyðublaði sem verður aðgengilegt á heimasíðu VM frá mánudeginum 2. mars 2026. Framboðsfresti lýkur á miðnætti þriðjudaginn 31.mars 2026.

Félagsmenn VM sem hafa greitt félagsgjald undanfarna sex mánuði áður en framboðsfrestur rennur út eru kjörgengir.

Nefndin hvetur félagsfólk VM til að bjóða sig fram svo stjórn félagsins endurspegli breidd félagsins með tilliti til til starfsgreina og landssvæða.

Stjórnarfundir eru haldnir einu sinni í mánuði, nema yfir sumartímann. Með tilkomu fjarfundaaðstöðu eiga félagsmenn út um land mun auðveldara að sækja fundi stjórnar. Formaður félagsins hefur verið í fullu starfi á skrifstofu félagsins.