2026
Málmsuðudagurinn haldinn í Iðunni 19. febrúar
Fréttir

Málmsuðudagurinn haldinn í Iðunni 19. febrúar

Iðan fræðslusetur og Veldix standa fyrir Málmsuðudeginum fimmtudaginn 19. febrúar 2026 í húsnæði Iðunnar að Vatnagörðum 20 í Reykjavík. Viðburðurinn stendur yfir frá klukkan 15:00 til 18:00. Boðið verður upp á fræðandi og fjölbreytta dagskrá þar sem fagfólk í málmsuðu kemur saman til að fræðast um þróun greinarinnar, deila reynslu sinni og horfa til framtíðar suðutækni og menntunar.

Erlendir sérfræðingar halda á Málmsuðudeginum fyrirlestra og veita innsýn í nýjustu strauma í suðutækni og menntun, auk þess sem þátttakendum gefst kostur á að ræða fagleg málefni í afslöppuðu umhverfi.

Fulltrúar frá Cranfield University kynna einstakt meistaranám í málmsuðu, MSc-nám sem er hið eina sinnar tegundar í heiminum. Fjallað verður um hvernig hægt er að byggja háskólanám ofan á starfsreynslu og hvaða tækifæri standa fagfólki til boða sem vill auka sérþekkingu sína og vægi innan greinarinnar.

Jacob Paul Bailey, reyndur breskur suðuverkfræðingur, segir frá reynslu sinni af flóknum verkefnum í alþjóðlegum iðnaði og sýnir hvernig hagnýt kunnátta, fagleg nálgun og margra ára reynsla geta opnað fjölbreytt tækifæri og leitt til lykilstöðu innan greinarinnar.

Að fyrirlestrum loknum verður boðið upp á léttar veitingar og stutt uppistand þar sem Dóri DNA stígur á svið.

Fyrirlesarar dagsins eru:

  • Dr. Wojciech Suder, Senior Lecturer in Laser Processing and Additive Manufacturing,
  • Dr. Graeme Barritte, Senior Lecturer in Welding Engineering and Metal Additive Manufacturing
  • Jacob Paul Bailey, Technical Certification Manager.