2026
Opið fyrir umsóknir um páskaúthlutun
Fréttir

Opið fyrir umsóknir um páskaúthlutun

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um dvöl í orlofshúsum okkar um páska 2026. Opið verður fyrir umsóknir til 3. febrúar nk.

Úthlutað verður rafrænt þann 4. febrúar, þar sem hæsta punktastaða ræður úthlutun. Niðurstöður úthlutunar verða sendar í tölvupósti/sms til félagsfólks.

Félagsfólk sem fær úthlutað þarf að greiða leiguna í síðasta lagi 6. febrúar. Eftir þann dag fellur bókunin niður ef hún er ógreidd.

Ef einhverjar eignir standa eftir ógreiddar, verður opnað á þær þann 10. febrúar og gildir þá reglan “fyrst koma fyrst fá” .