2025
Ný stjórn VM kjörin á aðalfundi 22. apríl
Fréttir

Ný stjórn VM kjörin á aðalfundi 22. apríl

Stefnt er að því að aðalfundur félagsins 2026 verði haldinn á Stórhöfða 29-31 þann 22. apríl næstkomandi. Fundurinn verður auglýstur þegar nær dregur með eins mánaðar fyrirvara, eins og lög félagsins kveða á um.

Á aðalfundinum verður kosið í stjórn félagsins en þess má geta að sitjandi formaður hefur gefið út að hann muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs. 

Upplýsingar fyrir þá sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarstarfa verða birtar hér á heimasíðunni á næstu dögum.

VM