2025
Fréttir

Fundaröð með vélstjórum lokið

Fundaröð Guðmundar Helga Þórarinssonar, formanns VM, lauk með fundi í Reykjavík í dag, 30. desember. Rík hefð er fyrir því innan félagsins að formaður þess fari um landið milli jóla og nýárs, þegar flest skip eru í landi, og fundi með vélstjórum um starfskjör og -aðstæður stéttarinnar. Þessari hefð tók Guðmundur Helgi við frá forvera sínum í embætti, Guðmundi Ragnarssyni.

Guðmundur Helgi lætur af störfum sem formaður á næsta aðalfundi félagsins, sem verður í vor. Hann hefur því lokið sinni síðustu hringferð um landið til að funda með vélstjórum.

Fundirnir voru á Reyðarfirði og á Akureyri 27. desember, á Höfn í Hornafirði 28. desember, í Vestmannaeyjum 29. desember og í Reykjavík 30. desember. Fundur sem átti að verða á Ísafirði 26. desember féll niður vegna raskana á flugsamgöngum. Hann var haldinn í gegnum fjarfundarbúnað í staðinn.

Guðmundur Helgi færir vélstjórum um allt land þakkir fyrir samveruna og góðar umræður á fundunum.