2025
Tímarit VM á leið inn um lúgurnar
Fréttir

Tímarit VM á leið inn um lúgurnar

Desemberútgáfa Tímarits VM er komin úr prentun og fer í dreifingu föstudaginn 12. desember. Dreifing tekur alla jafna fáeina daga. Prentuðu eintaki er dreift til allra þeirra félagsmanna sem náð hafa 67 ára aldri eða hafa síðustu ár skráð sig á þar til gerðan lista. Allir félagsmenn fá svo blaðið sent rafrænt í tölvupósti. Blaðið má líka lesa með því að smella á forsíðuna hér til hliðar.

Athugið jafnframt að hægt er að nálgast prentað eintak á skrifstofu félagsins á Stórhöfða 29-31.

Blaðið er að þessu sinni 64 síður en í því er að finna a.m.k. 12 viðtöl, flest við félagsmenn. Á forsíðu eru vélstjórarnir Andrés Róbertsson og Þórir Hálfdánarson sem tóku á móti VM um borð í rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur HF-300 á dögunum. Þeir ræða áskoranirnar sem fylgja því að taka við nýju skipi.

Í blaðinu er einnig að finna umfjöllun um verkefni Fagfélaganna; stofnun leigufélags, nýjar orlofsíbúðir og sitthvað fleira. Til tíðinda dregur strax á upphafssíðum blaðsins þar sem formaður ritar kveðjupistil. Hann mun láta af störfum á næsta aðalfundi.

Viðmælendum blaðsins eru færðar sérstakar þakkir fyrir þeirra framlag til útgáfunnar og þeim fyrirtækjum og stofnunum sem keyptu auglýsingar er sömuleiðis þakkað fyrir stuðninginn. Hægt er að senda ábendingar um efni blaðsins eða áhugaverð viðfangsefni á netfang ritstjóra, baldur@ordaval.is.

Efnisyfirlit blaðsins má sjá hér fyrir neðan: