Nýjar íbúðir í útleigu
Miðvikudaginn 10. desember kl. 09:00 verður opnað fyrir bókanir á nýjum orlofsíbúðum VM á Eirhöfða 7B. Fagfélögin hafa samtals keypt 30 íbúðir í húsinu en 10 þeirra fóru beint í langtímaleigu til félagsmanna. 20 íbúðir verða orlofs- og sjúkraíbúðir en gömlu íbúðir félaganna á höfuðborgarsvæðinu hafa verið seldar eða eru í söluferli.
Í tilfelli VM fjölgar íbúðum á höfuðborgarsvæðinu úr fimm í sjö. Tvær þeirra eru nú tilbúnar til útleigu.
Tímabilið sem hægt er að bóka er frá 12. desember 2025 til 21. ágúst 2026.