20 vélvirkjar fengu sveinsbréf
Tuttugu vélvirkjar voru í hópi nýsveina sem fengu sveinsbréf sín afhent í fallegri athöfn á vegum Iðunnar fræðsluseturs á þriðjudag. Athöfnin fór venju samkvæmt fram á Hótel Nordica en þar voru bæði ræðuhöld og skemmtiatriði á dagskrá. Veglegar veitingar voru einnig á boðstólum fyrir nýsveina og aðstandendur, sem klæddir voru í sitt fínasta púss við þetta hátíðlega tilefni.
VM færir nýsveinum hamingjuóskir með áfangann en að þessu sinni voru þrjár konur í útskriftarhópnum.
Ljósmynd/Rúnar Hreinsson (FIT)