Undirbúðu jólin á námskeiðum í málmtækni
Þrjú námskeið þar sem málm- og véltæknigreinar eru hagnýttar til jólaundirbúnings eru í fyrsta sinn á dagskrá Iðunnar fræðsluseturs á aðventunni.
Námskeiðin er öllum opin en gert er ráð fyrir að þátttakendur bjóði vini eða fjölskyldumeðlim með á námskeiðið og eigi notalega stund saman, en greiði aðeins gjald fyrir einn.
Óskar Grétarsson, leiðtogi málm- og véltæknigreina Iðunnar, segir að á þessum námskeiðum gefist fólki kostur á öðlast nýja sýn á iðngrein sem hingað til hefur ekki verið efst á blaði í hugum fólks þegar kemur að jólaundirbúningi. Kjörið tækifæri sé þarna fyrir meðlimi Iðunnar – úr hvaða grein sem er – til að kveikja áhuga unglings, maka eða vini á þeim möguleikum sem felast í greininni. „Námskeiðin eru hugsuð fyrir alla félaga Iðunnar sem hafa áhuga á málm- og véltækni eða vilja sameina föndur og jólastemningu,“ segir hann.
Um er að ræða þrjú námskeið, sem hvert um sig eru fjórar klukkustundir. Engin krafa er gerð um menntun eða reynslu þátttakenda en aldurstakmark gests er 13 ár. Að venju fá meðlimir Iðunnar námskeiðin á verulegum afslætti.
- Á því fyrsta smíða þátttakendur sinn eigin lampa með laserskurði og þrívíddarprentun. Þeir forrita svo örstýringu sem tengja má við snjalltæki. Þetta námskeið verður líka haldið á Akureyri 13. des.
- Á öðru námskeiðinu smíða þátttakendur litla beygjuvél og stand fyrir jólatré. Þar er unnið með plasmaskurð, suðuróbót og önnur málmsmíðaverkfæri.
- Á þriðja námskeiðinu smíða þátttakendur lítið jólaskraut úr málmi og nota til þess CNC-rennibekk og fræsivél.
Tímasetningar aðventunámskeiðanna:
- 4. desember – Ljós í skammdeginu
- 9. desember – Jólatréstandur og beygjuvél
- 10. desember – Jólaskraut smíðað í rennibekk og fræsivél
- 13. desember – Akureyri – Ljós í skammdeginu