Glæsileg hús tekin í notkun á Laugarvatni
Tvö glæsileg orlofshús hafa verið tekin í notkun á Laugarvatni. Um er að ræða hús nr. 2 og 4 en eldri hús stóðu áður á sama stað. Í húsunum eru þrjú svefnherbergi. Tvö herbergjanna eru með hjónarúmum (160cm breiðum) og eitt með fjölskyldukoju þar sem efra rúmið er 90 cm á breidd en neðra 140 cm.
Í húsunum er því svefnpláss fyrir sjö.
Opnað hefur verið fyrir leigu á húsunum á orlofsvefnum. Fyrstur kemur, fyrstur fær!
VM óskar félagsmönnum til hamingju með húsin!

