Íslensk kona kjörin formaður norska vélstjórasambandsins
Vestfirðingurinn Hulda Margrét Þorkelsdóttir var í september kjörin formaður norska vélstjórasambandsins, Det norske maskinistforbund. Hún er fædd á Ísafirði árið 1993 og er yngsti formaður félagsins frá stofnun þess árið 1902.
Hulda flutti til Noregs níu ára gömul og starfar í dag sem vélstjóri hjá Torghatten . Hún hefur tekið virkan þátt í kjaramálum síðan hún varð trúnaðarmaður árið 2018, þá starsfmaður Hurtigruten, og hefur setið í stjórn sambandsins frá 2022. Í félaginu eru um 6.500 félagsmenn.
„Þetta leggst mjög vel í mig. Ég er þakklát fyrir traustið og hlakka til að vinna að réttindum vélstjóra og annarra félagsmanna,“ segir Hulda í samtali við VM.
Lengra viðtal við Huldu Margréti verður birt í Tímariti VM, sem kemur út fyrir jól.