2025
Þrettán keppendur að hefja keppni á Euroskills
Fréttir

Þrettán keppendur að hefja keppni á Euroskills

Þrettán keppendur úr jafn mörgum iðngreinum taka þátt í Euroskills, Evrópumóti iðn- og verkgreina sem hefst í Herning í Danmörku í dag og stendur yfir til 14. september.

Keppendurnir héldu utan í gær en með þeim í för eru fjórtán expertar (þjálfarar sem jafnframt eru dómarar á mótinu). Auk þeirra eru fararstjóri, sálfræðingur og aðrir aðstandendur hópsins. 

Sigfús Björgvin Hilmarsson, sem vann keppni í málmsuðu á Íslandsmóti iðn- og verkgreina í mars og er á meðal keppenda. VM ræddi við Sigfús í síðasta tölublaði Tímarits VM. Þar sagði hann meðal annars: . „Það var í reyndinni stjúppabbi minn sem stakk upp á því að ég færi í eitthvað svona. Ég lét vaða og sé alls ekki eftir því, þetta er mjög skemmtilegt.“

Sjá einnig: Íslandsmeistari í málmsuðu

Á Euroskills er búist við 100 þúsund gestum en keppt verður í 38 iðngreinum. Íslensku keppendurnir eru margir hverjir búnir að æfa linnulaust í allt sumar en fyrstu æfingarnar hófust fyrir um ári síðan.

Á meðfylgjandi mynd má sjá tíu af íslensku keppendunum, en þeir mættu til eins konar kveðjuhófs á Stórhöfða um helgina.

Keppendur fyrir Íslands hönd á Euroskills eru:

  • Málmsuða: Sigfús Björgvin Hilmarsson

  • Pípulagnir: Ezekiel Jakob Hanssen

  • Rafeindavirkjun: Einar Örn Ásgeirsson

  • Rafvirkjun: Daniel Francisco Ferreira

  • Iðnaðarstýringar: Gunnar Guðmundsson

  • Húsasmíði: Freyja Lubina Friðriksdóttir

  • Matreiðsla: Andrés Björgvinsson

  • Framreiðsla: Daníel Árni Sverrisson

  • Grafísk miðlun: Jakob Bjarni Ingason

  • Bakari: Guðrún Erla Guðjónsdóttir

  • Hársnyrtiiðn: Bryndís Sigurjónsdóttir

  • Málaraiðn: Hildur Magnúsdóttir

  • Bifvélavirkjun: Adam Stefánsson

Mynd/Rúnar