2025
Félagsmaður fagnaði 100 ára afmæli
Fréttir

Félagsmaður fagnaði 100 ára afmæli

Jón Óli Þorsteinsson rennismiður fagnaði 100 ára afmæli sínu þann 31. júlí 2025. Lítil veisla var haldin í Seljahlíð í Reykjavík af þessu tilefni en þar er bæði þjónustuíbúðakjarni og hjúkrunarheimili. Nánasta fjölskylda og vinir Jóns Óla voru mættir til veislunnar.

Fyrir fáeinum árum var sú venja tekin upp hjá VM að félagsmönnum eru færðar gjafir þegar stórafmælum á seinni hluta ævinnar er fagnað. Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, mætti til veislunnar og færði afmælisbarninu blómvönd, kort og gjöf frá félaginu í tilefni þessa merka áfanga. Í stuttu ávarpi formanns kom fram að þetta væri í annað sinn sem honum hlotnaðist sá heiður að færa 100 ára afmælisbarni gjöf frá félaginu.

Ekki bar á öðru en að Jón Óli, sem ber aldurinn vel, væri þakklátur félaginu fyrir uppátækið. Hann lét þess þó getið, í léttum dúr, að veislan hefði verið haldin að undirlagi afkomenda sinna. Hann hefði ekkert haft um það að segja.

Jón Óli bað fyrir kveðju til annarra félagsmanna VM, sem hér með er komið til skila.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, var á meðal þeirra sem sendu afmælisbarninu kveðju, sem lesin var upp í veislunni.

Þess má geta að í haust verða 70 ár liðin frá því Jón Óli, sem lærði rennismíði í Iðnskólanum á Akureyri á fimmta áratug síðustu aldar, gekk í Félag járniðnaðarmanna. Félagið sameinaðist Vélstjórafélagi Íslands, undir merkjum VM, árið 2006.

VM færir Jóni Óla og aðstandendum hans þakkir fyrir móttökurnar og sendir innilegar hamingjuóskir með stórafmælið.

Á myndinni hér fyrir ofan er Jón Óli ásamt börnum sínum Bergljóti og Atla.