2023
Frábær dagsferð til Vestmannaeyja að baki

Frábær dagsferð til Vestmannaeyja að baki

Á áttunda tug eldri félagsmanna VM fór í frábæra dagsferð á vegum félagsins til Vestmannaeyja í gær, þann 15. júlí. Eftir rútuferð frá Reykjavík og siglingu með Herjólfi var hádegisverður snæddur á veitingastaðnum Einsa Kalda.

Eftir matinn fór hópurinn í skoðunarferð um Heimaey, undir dyggri leiðsögn Emils Arnar Kristjánssonar fararstjóra, sem fylgt hefur félagsmönnum VM í ferðum sem þessum um árabil. Hann var sem fyrr óþrjótandi brunnur fróðleiks ferðina á enda.

Eldheimar voru heimsóttir áður en ferðalöngum gafst færi á að skoða sig um í miðbænum í sannkölluðu blíðskaparveðri. Að svo búnu var haldið heim á leið. 

Það voru sælir en þreyttir félagsmenn sem stigu út úr rútunum á Stórhöfða í Reykjavík um um klukkan níu í gærkvöldi. Tólf tíma ferðalag var að baki.

Ferðinni verða ítarlega gerð skil í máli og myndum í næsta tölublaði Tímarits VM, sem kemur út í desember. 

VM færir hópnum ásamt Emil fararstjóra og bílstjórum GJ Travel bestu þakkir fyrir samveruna í gær.