2025
Lífeyrisnámskeið 31. mars – UPPSELT
Fréttir

Lífeyrisnámskeið 31. mars – UPPSELT

Fagfélögin bjóða félagsfólki sínu á námskeið um lífeyrismál mánudaginn 31. mars kl. 18.00. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Fagfélaganna að Stórhöfða 29-31 í fundarsal á jarðhæð (gengið inn Grafarvogsmegin). Athugið að makar félagsmanna eru velkomnir með á námskeiðið. 

Björn Berg Gunnarsson kennir námskeiðið, sem stendur yfir frá kl. 18-21.

Þátttökufjöldi er takmarkaður – síðast komust færri að en vildu.

Skráning fer fram hér

Hægt er að hafa samband við Fagfélögin í 5 400 100 ef ykkur rekur í vörðurnar.

Uppfært: Námskeiðið er fullt

 

Nánar um námskeiðið

Á námskeiðinu fer Björn yfir helstu stoðirnar í lífeyriskerfinu og hvernig þær virka. Rætt um stoðirnar sem mynda lífeyrisgreiðslur og reynt að svara ýmsum spurningum sem varða lífeyrismál.

1: Lífeyrir frá Tryggingarstofnun  (TR) fjárhæðir og tekjutengingar.

  • Hverjar eru lífeyrisgreiðslur frá TR og hvaða áhrif hafa atvinnutekjur, greiðslur frá lífeyrissjóðum og aðrar tekjur á  lífeyrisgreiðslur TR.
  • Tekjuætlun TR
  • Hvenær er hægt að hefja töku lífeyris hjá TR?

2: Lífeyrissjóðir samtryggingardeild

  • Lífeyrisgreiðslur hvað ræður fjárhæð lífeyris?
  • Áfallalífeyrir örorku-, maka- barnalífeyrir
  • Eru lífeyrisgreiðslur verðtryggðar?
  • Skipting lífeyrisréttinda milli hjóna og sambýlisfólks
  • Hvenær er hægt að hefja töku lífeyris?
  • Hvar finn ég upplýsingar um lífeyrisréttindin mín?

3: Séreignarsparnaður

  • Hvenær er hægt að innleysa séreignarsparnað og skattlagning?
  • Áhrif séreignarsparnaðar á lífeyrisgreiðslur TR

4: Tilgreind séreign

  • Hvernig virkar tilgreind séreign
  • Hvert er fyrirkomulagið á útgreiðslu tilgreindar séreignar og skattlagning

5: Hvað þýðir tryggingarfræðileg staða lífeyrissjóða?

6: Hugmyndir um hækkun á lífeyrisaldri og breytingu á aldursamsetningu þjóðarinnar.

7: Annar lífeyrir og skattlagning