2025
Ungmennin sýndu vélvirkjun mikinn áhuga á Minni framtíð
Fréttir

Ungmennin sýndu vélvirkjun mikinn áhuga á Minni framtíð

Á Íslandsmóti iðn- og verkgreina í Laugardalshöll var ekki aðeins keppt í iðngreinum heldur voru þær einnig til sýnis. Vélvirkjar tóku þar virkan þátt. Elva Dögg Melsted og Halla Sigurgeirsdóttir, fulltrúar Rio Tinto á Íslandi, segja tilganginn skýran: að vekja áhuga grunnskólanema á vélvirkjun og sýna þeim hvað felist í faginu.

„Við erum hér í samstarfi við VM og Iðuna og erum með sjö vélvirkja á svæðinu sem spjalla við krakkana, kynna fagið og leyfa þeim að prófa alls konar tæki og tól,“ segir Elva Dögg í samtali við VM. „Það vantar fleiri vélvirkja, rétt eins og í mörgum öðrum iðngreinum, svo við viljum ná til krakkanna á þeirra eigin forsendum.“

Eins og fram hefur komið komu á bilinu níu til tíu þúsund grunnskólanemendur úr níunda og tíunda bekk á Mína framtíð í Laugardalshöll 13.-15. mars.

Að sögn Elvu og Höllu vakti kynning vélvirkjanna mikinn áhuga. „Það hefur verið þétt setið hjá okkur og krakkarnir eru ekki bara að koma einu sinni – sumir koma aftur og vilja prófa meira. Það er greinilegt að eitthvað er einhver áhugi að kvikna. Við viljum sá fræjum,“ segir Halla.

Á sýningarsvæðinu gátu gestir prófað ýmis tæki og séð hvernig þau virka. Þarna var meðal annars CNC-fræsari og þrívíddarprentari, sem vöktu mikla athygli. „Þetta eru sömu tæki og vélvirkjar fást við í sínum störfum,“ segir Elva.

Rio Tinto hefur lengi notið þjónustu vélvirkja í álverinu í Straumsvík og tekur nú virkan þátt í að kynna fag framtíðarinnar. „Við viljum sýna að vélvirkjun er fjölbreytt, tæknimiðuð og spennandi grein.“

Elva segir að sýnileiki greinarinnar skipti miklu máli. „Krakkarnir þurfa að vita að þetta starf er til – og að það sé virkilega eitthvað fyrir þau sem hafa áhuga á tækni og handverki. Við erum hér til að reyna að kveikja þann neista.“