Íslandsmeistari í málmsuðu
Sigfús Björgvin Hilmarsson úr Tækniskólanum varð um helgina Íslandsmeistari í málmsuðu á Íslandsmóti iðn- og verkgreina. Í öðru sæti varð Trausti Ingólfsson frá Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra en í þriðja varð Jón Steinar Árnason frá Verkmenntaskólanum á Akureyri.
VM óskar Sigfúsi, Trausta og Jóni Steinari til hamingju með árangurinn.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir alla verðlaunahafa sem og myndir frá Íslandsmótinu.