
Opið fyrir umsóknir um páskaúthlutun
Í dag, þann 23. janúar, var opnað fyrir umsóknir um dvöl í orlofshúsum um páska 2025. Opið er fyrir umsóknir til 2. febrúar.
Rafræn úthlutun fer fram 3. febrúar, þar sem hæsta punktastaða ræður úthlutun. Niðurstöður úthlutunar sendar í sms/tölvupósti til félagsmanna.
Greiða þarf í síðasta lagi 6. febrúar. Ef það er ekki gert fer orlofshúsið aftur í umsóknarferli.
10. febrúar verður opnað fyrir bókun á þær eignir sem eftir standa.
Ath. að einungis er hægt að hafa eina bókun yfir páskatímann.
- Hér má sjá nýja upplýsingasíðu um umsóknir og úthlutanir orlofshúsa en nú er sótt um og bókað í nýju orlofskerfi.
- Leiðbeningar um notkun kerfisins eru hér.